
Arfleifð

Stofnað á Austfjörðum 2022
Kaldvík var stofnað árið 2022 úr sameiningu tveggja félaga: Fiskeldi Austfjarða og Laxar. Í dag er fyrirtækið eina laxeldisfyrirtækið á Austfjörðum.
Grunngildi
Við tryggjum það að hver einasti lax sem við látum frá okkur sé af hæsta gæðaflokki.
Við tryggjum það að starfsemi okkar fari fram á sjálfbæran hátt, þannig að hún starfi í sátt við íslenska náttúru og leggi sitt af mörkum til loftslagsmarkmiða Sameinuðu Þjóðanna.
Við viljum bjóða upp á gagnaupplýsingar um starfsemi okkar til þess að halda hagaðilum upplýstum um starfsemina.
Við komum af rótgróinni fiskveiðiarfleifð á Austfjörðunum. Sú þekking sem hefur skapast þar nýtum við í okkar starfsemi.
Við viljum hlúa að okkar nærsamfélögum og leggja okkar af mörkum að áframhaldandi hagsæld og velferð.
Hefðbundnar fiskveiðar á Austfjörðum
Í aldaraðir hefur sjósókn verið burðarás í lífsafkomu Austfirðinga. Hefðbundnar fiskveiðar hafa mótað menningu og efnahag Austfjarða kynslóðum saman. Þessi arfleifð snýst ekki bara um fiskveiðar heldur einnig um alla lífshætti, þekkingu á hafinu og samfélagsanda sem skapast af sameiginlegri vinnu aflans á sjó og landi.

Varðveisla hefða
Kaldvík, sem eina laxeldisfyrirtækið á Austfjörðum, leggur metnað sinn í að viðhalda þessum hefðum með sjálfbærum vinnubrögðum.

Virðing fyrir arfleifð fiskveiða í samfélögunum okkar
Kaldvík leggur sitt að mörkum til að stuðla að uppbyggingu efnahags svæðisins með því að skapa störf sem eykur tækifæri yngra fólks til að búa á svæðinu. Með því að þjálfa og ráða heimamenn í fiskeldi tryggir fyrirtækið að færni og þekking á hafinu haldi áfram að ganga í arf, þó í nútímalegri mynd sé.

Með þessum hætti getur Kaldvík ekki aðeins viðhaldið staðbundnum efnahag heldur einnig virt og varðveitt ríka fiskveiðiarfleifð svæðisins, þannig að hún blómstri fyrir komandi kynslóðir.
Umhyggja fyrir laxi og arfleifð
