
Vottanir

Vottun um sjálfbært laxeldi
Vottanir eru ekki aðeins til marks um gæði laxins, heldur einnig um sjálfbærni starfseminnar. Þær votta það að Kaldvík leggur sig fram við það að viðhalda heilbrigðu vistkerfi, starfsumhverfi og velferð fiskanna.
Vottanir okkar

01
Whole Foods Market
Sjávarafurðastaðall Whole Foods Market leggur áherslu á sjálfbærni, gæði og gagnsæi í fiskeldi. Með ströngum kröfum tryggir Whole Foods að neytendur hafi aðgang að sjávarafurðum sem eru aldar eða veiddar á ábyrgan hátt, þar sem heilbrigði vistkerfa og sanngjarnir starfshættir eru í forgangi. Þetta veitir neytendum öryggi í vali á sjávarafurðum, vitandi að þeir styðja umhverfisvernd og ábyrga framleiðsluhætti þegar þeir versla hjá Whole Foods.
Um staðla Whole Foods
02
Aquaculture Stewardship Council
ASC-vottunin (Aquaculture Stewardship Council) er ein kröfuharðasta gæða- og umhverfisvottunin í matvælaiðnaðinum. Staðallinn var þróaður af Alþjóðalega náttúruverndarsjóðnum (World Wildlife Fund) og vottar framlag framleiðenda um sjálfbær a og örugga starfshætti, dýravelferð og verndun nærliggjandi vistkerfa.
Um ASC
03
Brand Reputation Compliance Global Standards
Brand Reputation Compliance Global Standards (BRCGS) setur alþjóðlega staðla um matvælaöryggi og gæði og tryggir að ströngum alþjóðlegum kröfum sé fylgt í allri virðiskeðjunni. Staðallinn leggur áherslu á stjórn á meðhöndlun og skráningu matvæla, með skýrum kerfum sem styðja samræmi og ábyrgð. BRCGS-vottun veitir viðskiptavinum og samstarfsaðilum fullvissu um að vörurnar standist ríkar kröfur og séu meðhöndlaðar af kostgæfni á öllum stigum. Með markvissu og kerfisbundnu starfi hefur sláturhúsið okkar, Búlandstindur, hlotið BRCGS-vottun, sem undirstrikar skuldbindingu fyrirtækisins við matvælaöryggi, gæði og áreiðanleika á alþjóðlegum mörkuðum.
Um BRCGSUmhyggja fyrir laxi og arfleifð
