Fara beint í efni
Hringlaga laxakvíar og gular baujur á djúpbláum sjó, séð úr lofti

Laxeldisferlið

Fylgstu með því hvernig við förum að því að búa til hágæða lax, frá hrygningu til slátrunar

Laxatorfa syndir neðansjávar
01

Hrogn klekjast út

Í fyrsta áfanga eru hrogn frjóvguð. Það tekur 90 daga fyrir frjóvguð hrogn að klekjast út við 5–6 gráðu hita.

Maður hallar sér upp að handriði í seiðaeldisstöð
02

Alið í ferskvatni

Eftir að hrogn hafa verið frjóvguð og klekjast út eru þau sett í ferskvatnstanka þar sem þau vaxa frekar. Þau fá sjálfbæra næringu úr hæsta gæðaflokki. Þegar þau verða um 40–50 gr. eru þau bólusett til að tryggja varnir gegn sjúkdómum. Áður en þau eru svo færð í saltvatn fara þau í gegnum aðlögunarferli sem undirbýr laxinn fyrir líf í saltvatni. Í þessu ferli fær laxinn silfraðan liti og straumlínulaga form.

Röð laxakvía meðfram strönd fjarðar
03

Skiptieldi

Eftir að fiskurinn hefur lokið þessu aðlögunarferli er hann færður á aðra stöð þar sem hann er látinn vaxa áfram á landi. Þetta er gert til þess að hafa fiskinn eins stóran og mögulegt er áður en hann er færður út í sjó. Sjórinn er mjög kaldur og tær í íslenskum fjörðum, og við undirbúum fiskana eins vel og hægt er fyrir heilbrigt líf í sjónum.

Röð laxakvía í firði með snævi þöktum fjöllum
04

Sjóeldi

Þegar fiskurinn er færður út á eldissvæði í sjó notumst við við brunnbáta til að tryggja að hann skili sér örugglega. Í sjónum er hann alinn í kvíum úr neti þar sem ferskt vatn rennur í gegn. Þetta tryggir bestu aðstæður fyrir fiskinn að alast upp í.

Heill lax á ís í kössum merktum Kaldvík
05

Slátrun

Slátrunin fer fram þegar fiskurinn hefur náð 4–7 kg. að þyngd, og fer fram yfir allt árið. Slátrunin fer fram á sláturstöðinni okkar, og við tryggjum a ferlið er eins skilvirkt og mögulegt er. Þegar búið er að slátra upp úr einni eldisstöð er hún hvíld í 2–5 mánuði áður en byrjað er að ala upp nýjan fisk.

Umhyggja fyrir laxi og arfleifð

Tvö laxaflök á steinplatta með sítrónu, kryddjurtum og piparkornum