
Seyðisfjörður
Kaldvík hefur fengið leyfi til laxeldis í Seyðisfirði. Hér má lesa hvað áformin fela í sér og hvað þarf að gerast áður en eldi hefst.
Hver er staða verkefnisins?
Í september 2026 fékk Kaldvík leyfi til laxeldis í Seyðisfirði. Rekstrarleyfi Matvælastofnunar (MAST) gerir ráð fyrir allt að 10.000 tonna samanlögðum hámarkslífmassa á þremur eldissvæðum: Sörlastaðavík, Selstaðavík og Skálanesbót.
Leyfin eru mikilvægur áfangi eftir margra ára undirbúning. Þau þýða þó ekki að starfsemi hefjist strax.
Áður en ákvörðun um framkvæmdir eða tímasetningu er tekin þurfa þau leyfi og heimildir sem eftir standa að liggja fyrir. Við munum einnig fara yfir tæknilegar, umhverfislegar, líffræðilegar og fjárhagslegar forsendur verkefnisins. Reynslan af líffræðilegum áföllum undanfarinna missera verður einnig tekin inn í það mat.
Við munum ekki fara hraðar en gögn, leyfi og aðstæður leyfa. Áður en farið verður í næstu skref viljum við eiga reglulegt og opið samtal við íbúa Seyðisfjarðar, sveitarfélagið, atvinnulíf á svæðinu, umhverfissamtök og alla aðra sem eiga hagsmuna að gæta í firðinum.
Hversu lengi hefur verkefnið verið í undirbúningi?
Við hófum umsóknarferli í Seyðisfirði árið 2014. Verkefnið fór síðan í gegnum ítarlegt umhverfismat hjá Skipulagsstofnun.
Laxeldi er ekki nýtt í firðinum. Eldi var stundað í Seyðisfirði frá 1986 til 1997 og um 2002 voru einnig uppi áform um laxeldi þar á vegum fyrirtækisins Austlax.
Seyðisfjörður er langur og djúpur fjörður með góða endurnýjun sjávar. Hann er utan friðunarsvæða villtra laxastofna og því er heimilt að stunda laxeldi í firðinum.


Hvernig voru eldissvæðin valin?
Staðsetning eldissvæðanna tók breytingum í umhverfismatsferlinu. Þrennt réð endanlegu vali: að eldisstöðvarnar væru utan helgunarsvæðis Farice-sæstrengsins, að sýnileiki þeirra yrði sem minnstur og að þær hefðu sem minnst áhrif á siglingar um fjörðinn.
Hætt var við eldissvæði við Háubakka vegna athugasemda um að það yrði sýnilegt frá bænum. Svæðin þrjú sem eftir standa henta öll vel til fiskeldis með tilliti til staðsetningar og strauma.
Hvernig munu eldisstöðvarnar líta út?
Á hverju eldissvæði verður ein eldisstöð: þyrping 10 til 12 kvía og fóðurprammi. Hver kví er 50 metrar í þvermál og 160 metrar að ummáli. Eitt til tvö svæði verða í notkun á hverjum tíma á meðan þriðja svæðið er hvílt.
Kvíarnar eru gerðar til að þola allt að 9 metra ölduhæð og ísingu. Allur búnaður skal standast viðmið NS 9415, bæði hvað varðar hönnun og uppsetningu. Þéttleiki verður að hámarki 13 kg af fiski á rúmmetra.
Kvíarnar og fóðurprammarnir liggja lágt á sjónum. Þau sjást ekki nema úr talsverðri hæð í hlíðunum og sýnileikinn eykst eftir því sem ofar dregur. Engin eldisstöðvanna verður sýnileg frá bænum á Seyðisfirði.

Hafa eldisstöðvarnar áhrif á siglingar?
Seyðisfjörður er mikilvæg samgöngu- og ferðamannahöfn, með Norrænu, skemmtiferðaskip og aðra umferð. Starfsemi okkar verður að geta farið saman við öruggar siglingar.
Í umsóknarferlinu létum við vinna áhættumat á siglingaöryggi fyrir öll fyrirhuguð eldissvæði. Meðal annars var rætt við skipstjóra Norrænu og breidd siglingaleiða skoðuð með tilliti til þess að stór skip gætu mæst. Niðurstaðan var að fyrirhuguð staðsetning eldissvæðanna ætti ekki að draga úr siglingaöryggi.
Samgöngustofa veitti umsögn um áhættumötin og Vegagerðin staðfesti þau. Mötin voru síðan send Matvælastofnun og eru meðal þeirra gagna sem leyfisveitingin byggir á. Kvíarnar verða utan siglingageira Brimnesvita og staðsetning, merkingar og ljósabúnaður eru ákveðin í samráði við hafnaryfirvöld.
Við notum Norrænu mikið í okkar útflutningi, þannig að öruggar og greiðar siglingar um fjörðinn skipta okkur líka miklu máli. Við munum áfram vinna með hafnaryfirvöldum, Smyril Line og öðrum notendum fjarðarins að endanlegu fyrirkomulagi.

Hvernig eru umhverfisáhrif metin og vöktuð?
Hafrannsóknastofnun metur burðarþol hvers fjarðar, það er hversu mikið eldi hann getur tekið á móti án þess að það skaði lífríki eða gæði sjávar. Burðarþol Seyðisfjarðar er metið 10.000 tonn. Matið er endurskoðað reglulega og eldisheimildir fara aldrei umfram það.
Stofnunin metur einnig hversu mikið má ala af frjóum laxi áður en hætta á erfðablöndun eldislaxa við villta laxa telst óviðunandi. Samkvæmt áhættumatinu má ala 6.500 tonn af frjóum laxi og 3.500 tonn af ófrjóum laxi í Seyðisfirði. Eldi í firðinum verður ávallt innan þeirra marka.
Helstu umhverfisáhrif sjókvíaeldis verða vegna fóðrunar, sem leiðir til álags á botninn undir kvíunum. Áhrifin eru talin staðbundin og afturkræf.
Við munum vakta fjörðinn samkvæmt staðlinum ISO 12878 og fylgja vöktunaráætlun sem Umhverfisstofnun hefur samþykkt. Niðurstöður vöktunarinnar eru sendar Umhverfisstofnun. Matvælastofnun hefur eftirlit með búnaði og velferð fiska en Umhverfisstofnun með mögulegri mengun. Eftirlitsaðilar frá báðum stofnunum koma reglulega í heimsókn og niðurstöður eftirlitsins eru birtar á vefsvæðum stofnananna.
Við viljum gera rannsóknir, niðurstöður vöktunar og upplýsingar um umhverfi fjarðarins aðgengilegri.
Hvað þýðir eldið fyrir Austfirði?
Eldi í Seyðisfirði myndi skapa bein störf hjá Kaldvík og afleidd störf hjá verktökum, flutningsaðilum og öðrum þjónustufyrirtækjum á Austfjörðum. Um er að ræða störf við eldi, báta og vinnu á sjó, velferð fiska, líffræði, tækni, viðhald, flutninga, umhverfisvöktun og stjórnun.
Fiskinum yrði slátrað í Búlandstindi, sláturhúsi okkar á Djúpavogi. Hann yrði fluttur þangað lifandi með brunnbát og þaðan á markað með skipum eða í flugi.
Við viljum sýna hvað þetta þýðir í raun, frekar en að tala almennt um verðmætasköpun. Eftir því sem uppbyggingaráætlun mótast munum við birta tölur um núverandi störf á hverri starfsstöð, ný bein og afleidd störf, staðbundin innkaup og áhrif á slátrun og vinnslu á Djúpavogi.
Laxeldisfyrirtæki greiða einnig tekjuskatt, auðlindagjald og aflagjald og greiða árlega í umhverfissjóð sjókvíaeldis.
Algengar spurningar um Seyðisfjörð
Nei. Rekstrarleyfið heimilar að hámarki 10.000 tonn á öllum þremur eldissvæðunum samanlagt. Uppbygging verður metin í skrefum og þarf að byggjast á traustum líffræðilegum, umhverfislegum, fjárhagslegum og samfélagslegum forsendum.
Réttur aðila til að nýta lögbundnar kæruleiðir er eðlilegur hluti stjórnsýslunnar. Kaldvík mun taka þátt í ferlinu með málefnalegum hætti, leggja fram upplýsingar og virða niðurstöður lögbundinna kæru- og stjórnsýsluferla.
Kaldvík mun ekki hefja framkvæmdir nema þær heimildir og leyfi sem nauðsynleg eru fyrir starfseminni liggi fyrir. Ef uppi eru álitaefni um réttindi landeigenda eða afnotarétt þarf að leysa úr þeim eftir þeim lögbundnu leiðum sem gilda. Við teljum mikilvægt að virða rétt allra aðila.
Ofanflóðahætta er eitt þeirra atriða sem þarf að taka mjög alvarlega í Seyðisfirði. Hún hefur verið hluti af mati og leyfisferli verkefnisins og við munum fylgja þeim skilyrðum sem stjórnvöld setja.
Ef frekari rannsóknir eða óháð sérfræðimat eru talin nauðsynleg áður en starfsemi hefst teljum við sjálfsagt að þau fari fram.
ScaleAQ býr yfir sérþekkingu á búnaði og mannvirkjum fyrir fiskeldi og matið var unnið í því samhengi. Við skiljum vel spurninguna um óhæði þegar kemur að mati á náttúruvá.
Ef þörf er á frekara mati sérfræðinga sem eru óháðir búnaðarframleiðandanum teljum við eðlilegt að það sé gert áður en endanlegar ákvarðanir um framkvæmdir eru teknar.
Við skipulag starfseminnar voru sett skilyrði sem taka meðal annars mið af öryggi og náttúruvá. Kaldvík mun haga endanlegri útfærslu eldisstöðvanna í samræmi við þau skilyrði. Markmiðið er að draga úr áhættu eins og kostur er.
Landeldi og sjókvíaeldi eru mjög ólík framleiðslukerfi með ólíkar kröfur til innviða. Að ala 10.000 tonn á landi er umfangsmikil iðnaðarstarfsemi sem krefst mikils lands, vatns, raforku og sérhæfðra mannvirkja.
Fyrsta skrefið væri fýsileikakönnun á lóð, húsnæði, vatnsöflun, raforku, frárennsli, kostnaði og umhverfisáhrifum. Við erum opin fyrir því að skoða með sveitarfélaginu hvort núverandi atvinnusvæði eða húsnæði geti nýst í einhverjum hluta framtíðaruppbyggingar.
Helgunarsvæði Farice-sæstrengsins nær 463 metra frá strengnum til beggja hliða. Allur eldisbúnaður verður utan þess svæðis og innan úthlutaðra eldissvæða, svo fyrirhugað eldi mun ekki hafa áhrif á strenginn.
Lög um fiskeldi móta lagaramma atvinnugreinarinnar. Matvælastofnun fer með framkvæmd þeirra og hefur eftirlit með því að þeim sé framfylgt. Fiskeldi fellur einnig undir lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, en framkvæmd þeirra er í höndum Umhverfisstofnunar.
Önnur lög og reglur eru til að mynda reglugerð nr. 540/2020 um fiskeldi, reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunareftirlit og lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum.
Spurningar um Seyðisfjörð?
