Kaldvík leggur sitt að mörkum til að stuðla að uppbyggingu efnahags svæðisins með því að skapa störf sem eykur tækifæri yngra fólks til að búa á svæðinu. Með því að þjálfa og ráða heimamenn í fiskeldi tryggir fyrirtækið að færni og þekking á hafinu haldi áfram að ganga í arf, þó í nútímalegri mynd sé.

Arfleifð
Stofnað á Austfjörðum 2022
Samlegðaráhrif
Kaldvík var stofnað árið 2022 úr sameiningu tveggja félaga: Fiskeldi Austfjarða og Laxar. Í dag er fyrirtækið eina laxeldisfyrirtækið á Austfjörðum.

Grunngildi
Gæði
Við tryggjum það að hver einasti lax sem við látum frá okkur sé af hæsta gæðaflokki.
Sjálfbærni
Við tryggjum það að starfsemi okkar fari fram á sjálfbæran hátt, þannig að hún starfi í sátt við íslenska náttúru og leggi sitt af mörkum til loftslagsmarkmiða Sameinuðu Þjóðanna.
Gegnsæi
Við viljum bjóða upp á gagnaupplýsingar um starfsemi okkar til þess að halda hagaðilum upplýstum um starfsemina.
Arfleifð
Við komum af rótgróinni fiskveiðiarfleifð á Austfjörðunum. Sú þekking sem hefur skapast þar nýtum við í okkar starfsemi.
Samfélagsþátttaka
Við viljum hlúa að okkar nærsamfélögum og leggja okkar að mörkum að áframhaldandi hagsæld og velferð.
Hefðbundnar fiskveiðar á Austfjörðum
Arfleifð
Í aldaraðir hefur sjósókn verið burðarás í lífsafkomu Austfirðinga. Hefðbundnar fiskveiðar hafa mótað menningu og efnahag Austfjarða kynslóðum saman. Þessi arfleifð snýst ekki bara um fiskveiðar heldur einnig um alla lífshætti, þekkingu á hafinu og samfélagsanda sem skapast af sameiginlegri vinnu aflans á sjó og landi.


Kaldvík, sem eina fiskeldisfyrirtækið á Austfjörðum leggur metnað sinn í að viðhalda þessum hefðum með sjálfbærum vinnubrögðum.
Virðing fyrir arfleifð fiskveiða í samfélögunum okkar
Samfélag
