Fara beint í efni
Til baka
Uppfært Stakeholders

Kaldvík nýtt nafn Fiskeldis Austfjarða og kauphallarskráningu fagnað

Það var mikið um að vera í Randulffssjóhúsi á Eskifirði í gær þegar félagið Kaldvík fagnaði skráningu í Kauphöllina.

Hópur klappar á hafnarbryggju eftir að bjöllunni var hringt, með Nasdaq-skjá í bakgrunni

Það var mikið um að vera í Randulffssjóhúsi á Eskifirði í gær þegar félagið Kaldvík fagnaði skráningu í Kauphöllina. Kaldvík er nýtt nafn Laxa, Fiskeldis Austfjarða og Búlandstinds sem sameinuðust og starfrækja laxeldi og vinnslu á Austfjörðum.

Eldisbátum Kaldvíkur var stillt upp við sjóhúsið og við lokun kauphallarinnar á slaginu hálf fimm þeyttu þeir flautur þegar kauphallabjöllunni var hringt en skráning Kaldvíkur tekur gildi á morgun.

„Nú er félagið sem hefur bara verið skráð í norsku kauphöllina að skrá sig núna á Nasdaq á Íslandi. Þetta gefur íslenskum fagfjárfestum enn þá betra tækifæri að kaupa í félaginu. Þegar verður horft til hlutafjáraukningar í framtíðinni til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins þá er orðið betra fyrir íslenska fjárfesta að koma sterkar inn í félagið og með sterkari hætti,“ segir Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Kaldvíkur.

Fréttin birtist fyrst á RÚV.