Fara beint í efni
Til baka
Uppfært Company

KALDVIK AS (KLDVK): Frekari upplýsingar um marglyttuatvik í Reyðarfirði

Kaldvík áætlar að marglyttuatvikið í Reyðarfirði hafi valdið um 11,5 prósentustiga viðbótarafföllum. Sláturspá fyrir 2026 er óbreytt, um 17.000 tonn.

Vísað er til kauphallartilkynninga Kaldvíkur AS („Kaldvík“ eða „félagið“) frá 6. og 15. september 2026 vegna marglyttuatviks sem hafði áhrif á eldisstöðvar félagsins í Reyðarfirði, og til tilkynningar frá 1. október 2026 um samkomulag við lánveitendur félagsins um undanþágu frá lánaskilmálum. Í tilkynningunni frá 1. október kom fram að marglyttuatvikið hefði haft neikvæð áhrif á líffræðilega framleiðslu félagsins og fjárhagsstöðu þess.

Eftir áframhaldandi vöktun og mat áætlar félagið að atvikið hafi valdið viðbótarafföllum sem nema um 11,5 prósentustigum hjá þeim hluta 2025-árgangsins sem varð fyrir áhrifum, frá 4. september 2026. Til samanburðar var greint frá um 6,5 prósentustiga viðbótarafföllum þann 15. september 2026.

Dregið hefur úr marglyttum í Reyðarfirði. Líffræðilegar aðstæður á eldisstöðvunum sem urðu fyrir áhrifum eru aftur orðnar eðlilegar og afföll og át fisksins eru komin í eðlilegt horf.

Miðað við núverandi mat félagsins er sláturspá Kaldvíkur fyrir árið 2026 óbreytt, eða um 17.000 tonn.

Félagið mun veita frekari upplýsingar um líffræðilegan árangur eldisins í tengslum við kynningu á uppgjöri þriðja ársfjórðungs 2026 þann 13. nóvember 2026.