Kaldvík AS hefur tilkynnt að ársskýrslu félagsins fyrir árið 2025, sem til stóð að birta 28. maí 2026, hafi verið frestað til 12. júní 2026.
Ástæða frestunarinnar er sú að endurskoðunarferli vegna ársuppgjörs félagsins stendur enn yfir.
Áætlanir félagsins um birtingu fjárhagsupplýsinga vegna fyrsta ársfjórðungs 2026 þann 31. maí 2026 og kynningu þann 1. júní 2026 standa óbreyttar.
Sökum frestunar á ársskýrslu félagsins hefur aðalfundi verið frestað til 26. júní 2026.